Já mér hefur borist obinber kvörtun. Það var Ásta Steinunn sem lagði hana fram en hún vill meina að ég skrifi ekki nóg á þessa heimasíðu. Ég sem einstaklingur vill meina að ég skrifi um of. Því það vill svo skemmtilega til að það er nóg af heimsóknum og ef ég færi að skrifa meira þá færi fólk að missa af blogg færslum og væri þá ósátt með mig sem persónu af ofskriftum.
Þakka samt fyrir það Ásta Steinunn að þú fáir ekki ógeð af mér.... sem ég held að þú ættir að vera löngu búin að fá.
p.s. mamma ég elska þig.

3 comments:
Ég er náttúrulega löngu búin að fá nóg af þér Halli minn, það eru fréttirnar af Ásu sem að ég er að bíða eftir hehehehehahahaha. Nei grín. Mér finnst bara að það ættu að koma oftar fréttir af ykkur úr þessum hipp og kúl skóla ;) Eða er hann kannski ekkert hipp og kúl????
þú ert einstakur þarna Krúúúttið þitt..... ása knúsaðu hann ofurfast fyrir mig......
kv
happadís
Ég er alveg sammála Ástu Steinunni, þú mátt vera miklu duglegri að skrifa fréttir af ykkur.
Kveðja mamma
Post a Comment