
Jæja þá er ekki mikið eftir. það er komið að síðasta verkefninu fyrir jól og á það eftir að taka mig tvær vikur. það er svo í pottinn búið að ég átti að gera það sem ég vildi en samt sem áður átti það að tengjast samvisku. ég ákvað að ég yrði að gera eitthvað gjörsamlega allt öðruvísi en allir aðrir svo að ég ákvað að gera gjörning og vinna svo úr honum video og setja á dvd. gjörningurinn hljómar svo... ég ætla að fá líffæri úr kind og hnýta þau í bönd sem fest verða við loftið. ég mun svo ganga inní herbergið og leggjast í bað. sem verður fullt af rauðu vatni. þá hnýti ég hina endana á böndunum við sjálfan mig og hreyfi mig á einhvern undarlegann hátt svo að lífflærinn byrja að heyfast. þetta á allt að tákna það að ég verð þarna inní miðri kindini eða "samviska" kindarinnar og svo verður gjörningurinn tekinn upp á meðan öllu þessu stendur. gaman er að segja frá því að ég verð líka búinn að semja alla tónlistina og hanna ljósinn fyrir þetta. og svo er líka mjög gaman að segja frá því að allir kennararnir voru mjög ánægðir að heyra þessa hugmynd og hlakkar mjög til að sjá útkomuna.
en ég skrifa meira um afraksturinn síðar.


