Tuesday, December 12, 2006

Það er allt að verða vitlaust!!!!


Jæja það má með sanni segja að það sé allt að verða vitlaust hérna í skólanum. Nú eru bara nokkrir dagar eftir og fólk er svona að fatta að það hefur ekki verið að kynnast öllum sem þeim langaði. Og þess vegna eru allir búnir að vera BLIND fullir síðustu daga. Og allt crazy. Ég sit núna á móti kennaranum mínu klukkan er 10:53 og hann er kominn í bjórinn HAHAHAHA þetta er svo mikil snild. En já mig langaði bara að koma þessu út.
Nú fer samt að styttast í það að maður fari að drífa sig heim og er mig farið að hlakka svolítið mikið til að hitta konuna mína og alla.... já mamma líka þig ;) love you all kiss kiss úr DK.

Tuesday, December 05, 2006

Jæja þá er ég búinn að leika mér með dauða kind


Þetta tók nú svo sannarlega á þessi gjörningur. Dagurinn byrjaði svo að ég átti að fá skólabílinn lánaðann og keyra til aalbog sem er hér rétt hjá. En vill ekki svo skemmtilega til að það er verði að nota hann á fullu þennann dag. Þá fyrst varð ég stressaður. Búinn að henda út "flyerum" og fólk bjóst við sýningu klukkan fjögur. Jæja það reddaðist svo að Mike kennarinn minn lánaði mér bílinn sinn og ég og vinur minn og samnemandi keyrðum að slátur húsinu. Ég verð að viðurkenna að ég bjóst við meiri viðbóði en raun bar vitni um. Þetta var þryfanlegt og allt í þeim toganum. Hittum þar mann og sögðum honum alla sólasöguna. Hann benti á ruslatunnu hrúgu. Ég get ekki sagt að ég hafi verið beint ánægður þegar ég sá Heilann nautahaus stangandi þar uppúr. Því ég þurfti að finna hluti þarna ofaní. jæja eftir s.c. hálftíma vorum við lagðir af stað til baka. En þá átti ég eftir að fara með hljóðkerfi, ljós, og setja vatn í baðkarið á sýningar stað. Mike talaði við mig seinna um daginn þegar klukkan var orðin tvö og honum leist ekkert á blikuna. Hann sá ekki fram á það að mér tækist að klára allt fyrir fjögur. En eins og okkur Íslendingum er einum lagið þá tókst mér þetta á mettíma og sýningin gekk frábærlega. Fólk stóð og klappaði lengi, lengi og þá var ég alveg búinn á því.

Það var þá sem heit sturta kom sér MJÖG vel.

Tuesday, November 28, 2006

Þá er komið að því


Jæja þá er ekki mikið eftir. það er komið að síðasta verkefninu fyrir jól og á það eftir að taka mig tvær vikur. það er svo í pottinn búið að ég átti að gera það sem ég vildi en samt sem áður átti það að tengjast samvisku. ég ákvað að ég yrði að gera eitthvað gjörsamlega allt öðruvísi en allir aðrir svo að ég ákvað að gera gjörning og vinna svo úr honum video og setja á dvd. gjörningurinn hljómar svo... ég ætla að fá líffæri úr kind og hnýta þau í bönd sem fest verða við loftið. ég mun svo ganga inní herbergið og leggjast í bað. sem verður fullt af rauðu vatni. þá hnýti ég hina endana á böndunum við sjálfan mig og hreyfi mig á einhvern undarlegann hátt svo að lífflærinn byrja að heyfast. þetta á allt að tákna það að ég verð þarna inní miðri kindini eða "samviska" kindarinnar og svo verður gjörningurinn tekinn upp á meðan öllu þessu stendur. gaman er að segja frá því að ég verð líka búinn að semja alla tónlistina og hanna ljósinn fyrir þetta. og svo er líka mjög gaman að segja frá því að allir kennararnir voru mjög ánægðir að heyra þessa hugmynd og hlakkar mjög til að sjá útkomuna.

en ég skrifa meira um afraksturinn síðar.

Thursday, November 23, 2006

Afsakið hléð


SORRY... sörverinn er búinn að vera niðri og ég hef ekkert getað gert í smá tíma en nú er þetta allt komið upp aftur. ég ætla núna að gera nýtt albúm sem er ljósmyndabók sem ég hef hannað frá grunni. seinna meir var bókinn send til Árhúsa og þar sett saman. en ég hef annarst voðalega lítið verið að taka myndir svo að það er ekki mikið af spennandi myndum sem ég hef að sýna ykkur sem skoðið en ég vona samt að nú fari ég að verða duglegri að vinna í þessu vefplássi. síðan eftir áramót verður komið internet inná herbergin svo að þá verður "örugglegast nýtt blogg daglega. öll jafn óspennandi hehe. en jæja endilega kíði á myndirnar sem ég hef tekið í ljósmyndun. takið eftir því að það er ein manneskia í tvígang á hverri mynd og með skal fylgja að ég hef ekki notast neitt við tölvu á þessum myndum endilega segjið mér hvað ykkur fynnst um þær.

Thursday, November 09, 2006

Kominn frá Íslandinu góða


Jæja þá er maður kominn heim. (eða í skólann) Það var ekkert nema snild. Byrja á því að hitta konuna mína sem ég var ekki búinn að hitta í mánuð ogmikið var það gott. við fórum heim til tengdó og fengum pizzu að borða. það var orðið langt síðan ég fékk íslenska pizzu síðast. En hvað er það sem einkennir ísland meira en verðurteft.... maður spyr sig. það gat náttúrulega ekki staðist að ég gæti fengið flug til eyja því það var auðvitað ófært með fluginu. svo að það var drifið sig í herjólfinn "góða" og er ekki laust við það að ég hafi bara saknað hans aðeins. en svo þegar komið var til eyja leið mér vel hitti mömmu og Kollu strax en ekki Kalla og Ölla fyrr en daginn eftir.
Ég hitti marga af mínum vinum þessa helgi og hef ég saknað þeirra mikið síðan ég kom aftur í skólan. en það er alltaf þannig að maður þarf að fara og svo eru nú ekki nema fimm vikur í dag þar til skólinn er búinn og verð ég þá í þrjár vikur heima.
Ferðin tók svo enda á því að ég og yndisfargra englakrúttið mitt hún ása fórum í bæjnn gistum eina nótt og snemma um morguninn þurftum við að vakna snemma til að mæta í flug. það var erfitt að kveðja ásu og fynnst mér ég vondur að vera alltaf að kveðja hana. en þetta styrkir bara samband okkar hjónanna held ég en jæja þetta verður ekki lengra núna blogga meira seinna og verið dugleg að commenta.

Monday, October 30, 2006

STÓR FEST Í SKÓLANUM


jájá maður lifandi það var bara fullur skóli af gömlum nemendum hérna um helgina svona sirka 90 stikki plús við öll 72 þið gerið reykninginn. Við kynnumst mjög mörgum og það var algjör snild að vera hérna. en vildi bara segja ykkur frá þessu vegna ég er ekkert búinn að vera að duglegur að blogga en jæja búinn að gera þrjú blogg í kvöld reyni að halda þessum eldmóð:)

Þema vika í skólanum


já það var þema vika hjá mér í skólanum og var ég í svo kölluðum "hljóðhóp" sem fólgst í því að við völdum okkur herbergi þrír drengir saman og áttu að taka upp hljóð í herberginu. Berja ,lemja og slá. svo áttum við að vinna tónlist úr öllu saman. það gekk vel hjá okkur og svo áttum við að sýna tónlistina í herberginu svo allir gætu séð.
sumir gerðu gjörning og aðrir gerðu video það gerðum við.

Á leið heim


Nú er svo í pottinn búið að maður ætlar að kíkja heim til Vestmannaeyja. Það verður lagt af stað í reistuna þann 2. nóv og fer ég í flug 13:20 á staðar tíma. Ég er mjög spenntur að sjá hvað verður úr þessari ferð minni og gaman verður að sjá gleymd andlit hinnar fögru eyju. Dvöl mín mun svo enda þann 7.nóv þegar ég held aftur úr landi og kveð ísland á ný.

Hlakka mjög til að sjá ykkur öll en þá aðalega fjölskildu mína og unnustu.

Wednesday, October 25, 2006

Þegar Ása konan mín kom til mín


já það er ekki frá því að Ása hafi komið til mín. ég veit að ég er að skrifa þetta svolítið seint en betra er seint en aldrei. Ég var að koma frá Ítalíu og fórum við saman ég, Ari, Habba og Dóra. Dóra skildi við okkur snemma því hún fór til íslands um hádegi en um kvöldið koma ljós lífs míns jújú það var engin önnur en hún Ása Jenný Gunnarsdóttir aka. unnusta mín og ekki var hún nú ein að þessu sinni heldur með vinkonu sína. hana Andreu. það var allt svo gott þegar við komum saman þetta kvöld. en morguninn eftir þá var okkur blöskrað ei lítið það var ekki meira né minna en misskilningur á herbergis bókun.......... í stað tveggja herberja. eitt eins manns og eitt tveggja manna. þá fengum við eitt þriggja manna og ekkert hægt við því að gera því að það var allt annað bókað eða í notkun. svo að greyið Andrea þurfti að sofa já inni hjá okkur Ásu alla helgina.

það var nú ekki mikið gert annað en skoðað og verslað... og verð ég að segja að það var ekki ég sem átti stæðsta þáttinn í seinna orðinu. fóru út að borða og áttum ánægjulegar stundir saman.

en hvað haldiði hhaldiði að ég hafi ekki gleymt að taka myndir alla þessa helgi nema rétt áður en að stelpurnar fóru.... það eru aðalega myndir af Ásu og verða þær ekki byrtar vegna þess að ég held að henni þykki ekki neitt svo vænt um það.

Tuesday, October 10, 2006

Feneyjar


Ferðin var efið í magra staði. Við vöktum lengi og það var mikið gert á daginn og farið snemma á fætur sem var mjög leiðinlegt. Við skoðuðum mörg söfn og svo var bærinn sjálfur eitt stórt safn ótrúlegt að vera labba í eldgömlum bæ sem lyktar af gömlum arkitegtúr og list.
Annað sem við gerðum var að fara á Alþjóðlegt arkitegtúrasafn sem var aldið á stæðstu eyjuni og það var mjög fróðlegt. ísland átti sinn þátt í sýniguni og var ísland ekkert síðara en önnur lönd á þessari sýningu.
Ekki verður nú slept því að tala um "fylliríin Feneyjum því það var mikið um það enda í svokölluðu fríi. haha...
Við kynntumst mjög mörgum þarna úti og gaman er að segja frá því aðvið höldum að einn kennari hafi slegið sér upp með nemanda. engin nöfn verað þó gefin upp.
En þegar uppi var staðið þá var þetta snild í alla staði hefið samt viljað að konan mín hefði verið með mér í þessari rómantískustu borg sem ég hef upplifað.

Ferðin til Feneyja


Jæja við þöknum snemma þennann morgun til að koma okkur af stað. Fyrir utan skólan biðu tvær rútur sem við þurftum að ferðast í, í 20 klukkutíma. Þetta var spennandu til að byrja með og var fólk yfir höfuð í miklu stuði. Sumir ákváðu að leggja sig strax og vera þá betur sofin þegar líða færi á freðina.... ég var einn af þeim.
Ég hefði frekar átt að sleppa því. því ég svaf ekki mikið um nóttina og ég get ekki sagt að það sé neitt auðvelt að fynna sér góðan stað já eða stöðu til að sofa í í rútu.
En loks var komið á leiðarenda allir mjög þreyttir og illa sofnir. þá fengum við okur að borða og það var ekkert spes. Við biðum svo eftir svo kölluðum sjávar strætó eða eins og það er kallað í Feneyjum.
Loks þegar við vorum komin á hótelið þá fengum við nú ekki að slappa af. Við þurftum að fara strax að skoða bæjinn. eða það var það sem kennurunum þótti hentugast.

Sunday, September 24, 2006

Afsökunar beiðni

Þið verðið afsaka mig ég get ekki sett myndir inná því það er eitthvað að síðuni en ég lofa að innan bráðar verð ég búinn að setja helling inná og gera eitthvað flott. ég er einmitt með mikið af drasli sem ég er búinn að vera að gera svo að það er slatti sem ég á eftir að setja inná. og hver veit nema að ég setji myndir að skegginu góða sem kallinn er kominn með. hahahaha

Það verður bara betra og betra

Jæja sorry hvað ég er búinn að vera óduglegur við að skrifa. þið trúið því örugglega ekki hvað það er alltaf mikið að gera hjá mér og þessi þemavika sem var að taka enda á föstudaginn var geðveik. Ég var í "adobe" sem er tölvuhópurinn lærið margt nýtt reyndar bara nýjar tæknir og svoleiðis en ég hef ákveðið að fara að leika mér meira að spreyji það er snild sem hægt er að gera með svona spreyji. en jæja það er voða lítið sem ég get sagt núna. jú kanski. í gær fórum við habba og dóra út að borða í randers á mexikanskan stað sem var algjör snild og svo fórum við á breskan pöbb og þar var band að spila (blús) mér leiddist það nú ekki en þá fengum við hrigingu úr skólanum og það vara alveg heljarinnar party þar og svo við ákváðum að fara aftur í skólan og það var dansað fram á nótt.
ég reydar er farinn að saknasvolítið þess að geta farið í toppinn og fá mér einn djúsí að hætti kalla. það væri all svakalegt að fá einn borgara hjá honum núna. HAHA en jæja haldið áfram að skrifa til bara og endilega sendið mér einhverjar fréttir eða eitthvað. það væri gaman fyrir mig sem lifi í eymd og vanlíðan hahah neinei ég er að lifa draumi hérna skrifa meira seinna.

Wednesday, September 13, 2006

Loksins


Jæja þa eru komnar nyjar myndir inn. Svakalega faar en þetta eru myndir. Gott að sja hvað folk er að taka mikinn þatt i þessari heima siðu hja mer og þakka eg fyrir það. Gaman að heyra að folki þyki vænt um mig. Það er eins og alltaf allt geðveikt gott herna og Gangurinn minn hjellt party fyrir mig og það var kaka og finiri. Nyr strakur var ad koma i skolann hann er noskur og bara mjög finn t.d. gaf hann mer rauðvin i afmælisgjöf.

Tuesday, September 12, 2006

Hr. Yfirvaraskegg

Nu a eg afmæli og er buinn ad fa fult af pokkum fra krokkum i skolanum. Hef reyndar voda litid ad segja tad er bara alltaf brjalad ad gera.

en nuna er keppni i gangi milli okkar drengjana i skolanum. tetta er keppni um flottasta yfirvarakeggid og hun mun taka einn og halfan manud. tad fa allir karlmenn skolans ad taka tatt. og svo verdur mikil veisla og domnefnd.

jæja eg var ad klara verkefni um madreydslubok og koma kannski nyjar myndir i kvold eda a morgun ef timi gefst.

en jæja eg er farinn ad safna skeggi skrifa meira tegar eg hef meiru tima.


p.s. fyndid eg flyt til danmerkur og ta er staffaparty i toppinum... haha

Tuesday, September 05, 2006

Ása Jenny Unnusta i heimsókn

Jæja um helgin kom hún Ása mín í heimsókn og það var mjög gott að sjá hana eftir svona langan tíma. Við vorum hérna í skólanum alla helgina og höfðum það mjög gott. Fórum í Randers á laugadagskvöldið til að skemmta okkur. Við vorum bara 10 í skólanum svo að þetta var þéttur hópur.
Mánudagsmorguninn kl. 4 fórum við hjónin á fætur og ætluðum að taka lest til Køben. Það gekk allt vel þar til að viðvorum komin á lesta stöðina. Kortið virkaði ekki... svo að við þurftum að fara í hraðbanka til að taka út taxinn skutlaði okkur að næsta banka en hann var læstut svo að við þuftum að fara í annann. Þegar við vorum komin aftur að lestastöðini þá var lestin farin. OG við þurftum að bíða í hálftíma eftir næstu. Þegar við komum í hana mundum við eftir því að við gleymdum að kaupa miða... Svo okkur var hent út í Árhúsum. þar þurfti ég að hlaupa og kaupa miða þegar ég kem niður aftur er lestin að skríða í burtu svo að við þuftum að bíða í annann klukkutíma. Jæja við komumst loks í lest og á leiðar enda eða Køben. Þar fengum við okkur að borða og Ása vildi versla aðeins eins og skiljanlegt er fyrir konu... það er eitthvað sem konur vilja gera. En svo förum við að drífa okkur í lest á flugvöllinn. Í lestini áhveður Ása að kíkja í töskuna og tjekka á miðanum en sér til skelvingar sér hún að flugið er klukkutíma fyrr en hún hélt. Svo......... Það er hlaupið og hlaupið og hlaupið á flugvellinum sem var reyndar skipti litlu því að loks þegar við komum á leiðarenda var flugið lokað og hún "orðin" of sein þó svo að það væru 20 mín í flugið.
Við þurftum að kaupa nýjan miða og næsta flug var ekki fyrr en eftir 7 tíma. Svo að við Ása ákváðum að fara aftur til Køben og skoða okkur um því hún hafði aldrei komið þangað áður. Við skoðuðum margt hún kíkti í nokkrar búðir. og svo settumst við bara á kaffi hús til að spjalla og njóta þessara óvæntu samveru. við komumst á leiðar enda og erum heiláhöldnu og bíðum nú spennt í mánuð eftir öðru æfintýri.


p.s. maður spyr sig er þetta ekki eitthvað svona týbíst Ari og Berit....?

Wednesday, August 30, 2006

Miðvikudagurinn langi


Í allan dag er ég búinn að vera að bíða eftir Ásu minni en hún kemur ekki fyrr en kl 5 í nótt. Þessi mynd fyrir neðan er eitthvað biluð hún á alls ekki að vera svona á litin og það vantar mikið inná þetta svo að ég set aðra inná myndir seinna en jæja þetta er gaman tala við ykkur og commentiði svo ég sjái nú hverjir eru að skoða.

Tuesday, August 29, 2006

nytt verkefni


Jæja nú er komið að nýju verkefni sem er að búa til matreiðslubók.
þetta verkefni á að taka okkur tvær vikur og í dag eigum við bara að "brainstorma" sem þíðir að láta hugan reyka og fá eins margar hugmyndir og við getum.. það gengur ekki vel hjá mér en það verður örugglega betra með tímanum.
Við verðum að gera allt sjálf. Taka ljósmyndir og allt svoleiðis ekkert photoshop og ekkert þess háttar dótarí
það verður gaman að sjá hvernig þetta á eftir að enda en ég sýni myndir af því seinna. En myndin sem þið sjáið hér fyrir ofan er plaggat sem ég gerði fyrir tískusýningu sem haldin verður 8. september. og verður það útum allt hér í danmörk

Sunday, August 27, 2006

Ferða sagan


Þegar ég vaknaði um morguninn eða öllu heldur nóttina til að taka flugið til Danmerkur þá var ég mjög þreyttur og þurfti að bíðaa mjög mikið. Alltof mikið af fólki á flugvellinum og ég veit ekki hvað og hvað. þegar ég er loks kominn útí vél og búinn að fá mér sæti kom eldir kona og átti að sitja við hliðiná mér. Ekki skemmtilegasti ferðaélagi sem ég hef haft.... haha. En núna var ég kominn á landið fagra sem ber nafnið Danmörk og gerði mér ekki alveg grein fyrir því hvað það yrði heitt því ég var klæddur tveim peysum og var með meðmér tvær alltof stórar ferðatöskur og þrjá bakpoka. Ég labba niður og á að taka lest til köben. ég missti af tveim fyrstu lestunum en kommst loks í eina. Þegar ég var kominn til köben þá tók við labb sem tók lengri tíma ég hefði búist við því að ég var mjög hlaðinn... og hitinn yfirþyrmandi. En ég komst loks á hótelið eyddi tveim dögum þarna hitti vestmanneyjinga sem ég fór út að borða með fyrra kvöldið en einhverja íslenska krakka seinna kvöldið sem ég náði mjög vel til.
um morguninn sem ég átti að taka lest til Randers var mjög spes ég fór í fyrstu lestina og komst svo að því að ég átti ekki að vera í henni svo ég fór út í Árhúsum og beið þar í 15 mín. tók þá aðra lest en var í vitlausum vagni... svo ég þurfti að skipta um vagn á næsta stoppi. hafaskal hugfast að ég var enn með allann farangurinn.
ég fæ mér sæti og kemur þá ekki kona til mín og segir að ég verði að borga ég var heldur snjall þá því að öll kortin og allur peningur voru mjög illa stað sett þessa stundina svo ég sagði að ég hefði verið askipta um vagn og kallinn i hinum hafði látið mig borga. hún trúði því... loks komu leikhæfileikar mínir að góðum notum
Ég var nú loks kominn í Randers og hitti þar stelpu sem var einmitt að fara í sama skóla við deildum leigubíl saman í skólan

eftir þrjá erfiða daga var ég loks kominn á leiðarenda.

Myndir

Ef þú vilt sjá nokkrar myndir frá mér hér í danaveldi þá lítur til hægri á heimasíðuni og þar á að standaa "links" og þar fyrir neðst stendur "myndir" svo að það ætti ekki að vera mikið mál að skoða endilega sedjiði inn comment eða eins og það er nú kallað á íslandi "endilega kommentiði" hlakka til að sjá hvað verður úr þessu

En sakna allra mjög mikið og hlakka til að sjá ykkur um jólin...!!!!

Fyrsta skrif


Jæja þá er maður kominn með blogg.... eitthvað sem ég hélt að ég myndi aldrei gera á æfinni. En svona vill oft gerast.
Ég hef ákveðið að byrja á þessu svo að fólk geti fylgst með mér hérna í skólanum og hafa auga með mér.
þetta er búið að vera snild varla trúi því að ég njóti þessara forréttinda að vera í þessari paradís.