Monday, February 12, 2007

Hutte Tur


Já það er óhætt að segja að það hafi verið algjör snild hjá okkur litlu hjónunum í danaveldi um helgina. Það var svo kallaður hutte tur. Við keyrðum afstað kl 09:00 um morgun í leið í ævintýra leit. Við vorum kominn um kl 11:00 og þá fór fólk að koma sér fyrir. Lítill kofi og lítið pláss. Enda ekki að furða því við vorum nú 75 stikki. En þegar allt var komið á sinn stað þá var byrjað á verkefni. Við áttum að að gera sögu með 15-20 ljósmyndum. Og svo Búa til eilífðarvél. Þetta var mjög erfitt af sökum þess að það var mjög kalt þennann dag og var fólk yfir höfuð alveg búið á því þegar allt var búið.
En þetta kvöld var hoft á "Rocky Horror" og kveikt upp í varð eld. Þar sem ég spilaði og söng langt fram eftir nóttu. Með nokkrum samnemendum og fá einum kennurum.
Daginn eftir var eilítið erfitt að vakna enda ekki furða því ekki var ég búinn að sofa mikið. Þá var drifið fólkið útí rútu og ekkert fengum við að vita annað en það að við áttu að vera vel klædd. Þegar leið á ferðina þá komumst við að því að við vorum sett í fjögramanna hópa og einn hóp í einu létu þau út á víðavangi.
Sjálfur lenti ég í hópi með þrem stelpum. Og eins sem við fengum að vita var það að við þyrftum að koma okkur heim og taka ljósmyndir af leiðangrinum. þetta var kl12:00 sem við vorum komin af stað en vorum ekki komin heim fyrr en kl 16:oo þreitt lögðum við okkur ískalt og búin á því.
Það var samt sem áður ekki til setunar boðið því um kvöldið þufti að halda uppá afmæli hjá einn og verð ég að viðurkenna að ég hef sjaldan séð eins mikla ölfun og akkurat þetta kvöld.
Kvöldið var snild.
um morguninn var svo haldið heim og get ég sáttur sagt að ég panntaði Pizzu og lá uppí rúmmi rest af degi.

Það verður ekki meira að þessu sinni. Skrifa fljótt aftur.

No comments: