Wednesday, August 30, 2006

Miðvikudagurinn langi


Í allan dag er ég búinn að vera að bíða eftir Ásu minni en hún kemur ekki fyrr en kl 5 í nótt. Þessi mynd fyrir neðan er eitthvað biluð hún á alls ekki að vera svona á litin og það vantar mikið inná þetta svo að ég set aðra inná myndir seinna en jæja þetta er gaman tala við ykkur og commentiði svo ég sjái nú hverjir eru að skoða.

Tuesday, August 29, 2006

nytt verkefni


Jæja nú er komið að nýju verkefni sem er að búa til matreiðslubók.
þetta verkefni á að taka okkur tvær vikur og í dag eigum við bara að "brainstorma" sem þíðir að láta hugan reyka og fá eins margar hugmyndir og við getum.. það gengur ekki vel hjá mér en það verður örugglega betra með tímanum.
Við verðum að gera allt sjálf. Taka ljósmyndir og allt svoleiðis ekkert photoshop og ekkert þess háttar dótarí
það verður gaman að sjá hvernig þetta á eftir að enda en ég sýni myndir af því seinna. En myndin sem þið sjáið hér fyrir ofan er plaggat sem ég gerði fyrir tískusýningu sem haldin verður 8. september. og verður það útum allt hér í danmörk

Sunday, August 27, 2006

Ferða sagan


Þegar ég vaknaði um morguninn eða öllu heldur nóttina til að taka flugið til Danmerkur þá var ég mjög þreyttur og þurfti að bíðaa mjög mikið. Alltof mikið af fólki á flugvellinum og ég veit ekki hvað og hvað. þegar ég er loks kominn útí vél og búinn að fá mér sæti kom eldir kona og átti að sitja við hliðiná mér. Ekki skemmtilegasti ferðaélagi sem ég hef haft.... haha. En núna var ég kominn á landið fagra sem ber nafnið Danmörk og gerði mér ekki alveg grein fyrir því hvað það yrði heitt því ég var klæddur tveim peysum og var með meðmér tvær alltof stórar ferðatöskur og þrjá bakpoka. Ég labba niður og á að taka lest til köben. ég missti af tveim fyrstu lestunum en kommst loks í eina. Þegar ég var kominn til köben þá tók við labb sem tók lengri tíma ég hefði búist við því að ég var mjög hlaðinn... og hitinn yfirþyrmandi. En ég komst loks á hótelið eyddi tveim dögum þarna hitti vestmanneyjinga sem ég fór út að borða með fyrra kvöldið en einhverja íslenska krakka seinna kvöldið sem ég náði mjög vel til.
um morguninn sem ég átti að taka lest til Randers var mjög spes ég fór í fyrstu lestina og komst svo að því að ég átti ekki að vera í henni svo ég fór út í Árhúsum og beið þar í 15 mín. tók þá aðra lest en var í vitlausum vagni... svo ég þurfti að skipta um vagn á næsta stoppi. hafaskal hugfast að ég var enn með allann farangurinn.
ég fæ mér sæti og kemur þá ekki kona til mín og segir að ég verði að borga ég var heldur snjall þá því að öll kortin og allur peningur voru mjög illa stað sett þessa stundina svo ég sagði að ég hefði verið askipta um vagn og kallinn i hinum hafði látið mig borga. hún trúði því... loks komu leikhæfileikar mínir að góðum notum
Ég var nú loks kominn í Randers og hitti þar stelpu sem var einmitt að fara í sama skóla við deildum leigubíl saman í skólan

eftir þrjá erfiða daga var ég loks kominn á leiðarenda.

Myndir

Ef þú vilt sjá nokkrar myndir frá mér hér í danaveldi þá lítur til hægri á heimasíðuni og þar á að standaa "links" og þar fyrir neðst stendur "myndir" svo að það ætti ekki að vera mikið mál að skoða endilega sedjiði inn comment eða eins og það er nú kallað á íslandi "endilega kommentiði" hlakka til að sjá hvað verður úr þessu

En sakna allra mjög mikið og hlakka til að sjá ykkur um jólin...!!!!

Fyrsta skrif


Jæja þá er maður kominn með blogg.... eitthvað sem ég hélt að ég myndi aldrei gera á æfinni. En svona vill oft gerast.
Ég hef ákveðið að byrja á þessu svo að fólk geti fylgst með mér hérna í skólanum og hafa auga með mér.
þetta er búið að vera snild varla trúi því að ég njóti þessara forréttinda að vera í þessari paradís.