Monday, February 05, 2007

Jæja..........


Núna verð ég víst að byðjast fyrirgefninar á því hvað ég er búinn að gera ekki neitt síðan ég kom í skólan en það er nú bara svo að ég hef staðið á höndum hérna. Ég er stoltur að segja frá því að ég er búinn með fyrista hóp verkefnið mitt á þessari önn. Sem var nú bara ekki sem verst. Við áttum að gera plaggat fyrir skólann. Eða öllu heldur plaggat til þess að fá krakkana í skólanum til að spara rafmagn, og vatn meira. við fáum að vita á morgun hver fann samkeppnina.
Nú fleirra í fréttum er það að ég er ekki einn núna Ása ákvað að slást í hóp Íslendinaherferðarinnar. Og búum við nú saman í svo kallaðari svítu.... sem að sjálfsögðu er gámur já..... gámur. hhehehe en það er allt í lagi því að við erum alveg útaf fyrir okkur. Og svo er að segja frá því að Ása var ekki sú eina sem ákvað að sækja Danmörk heim heldur erum við nú tólf Íslendingar að þessu sinni. Og líkar mér mjög vel við þennann hóp. Og í sjálfum sér er skólinn mjög góður yfir höfuð allir hérna mjög tilbúinir að hafa það gott þetta hálfa ár sem við verðum hérna saman.
En ég ætla ekki að segja meir að sinni nema kannski það að nú næstu helgi verður internetið komið á allann skólann og hef ég áætlað að skrifa nánast dalega þegar það verður.

Svo ég kveð að sinni. Vona að það lesi þetta einhver annar en mamma ;) (þetta var brandari) og endilega skiljið eftir comment.

2 comments:

Anonymous said...

Kolla Syss
Gaman að heyra fréttir af þér aftur.....
Vertu nú duglegur að skrifa.
Söknum þín
Kv. Liðið úr hrauntúni 37

Anonymous said...

Hæ elskurnar mínar! Mátti nú til með að kvitta fyrir mig, held enn að ég sé sú eina sem kíki á síðuna þína, hafið það gott. Þín mamma