Tuesday, October 10, 2006

Ferðin til Feneyja


Jæja við þöknum snemma þennann morgun til að koma okkur af stað. Fyrir utan skólan biðu tvær rútur sem við þurftum að ferðast í, í 20 klukkutíma. Þetta var spennandu til að byrja með og var fólk yfir höfuð í miklu stuði. Sumir ákváðu að leggja sig strax og vera þá betur sofin þegar líða færi á freðina.... ég var einn af þeim.
Ég hefði frekar átt að sleppa því. því ég svaf ekki mikið um nóttina og ég get ekki sagt að það sé neitt auðvelt að fynna sér góðan stað já eða stöðu til að sofa í í rútu.
En loks var komið á leiðarenda allir mjög þreyttir og illa sofnir. þá fengum við okur að borða og það var ekkert spes. Við biðum svo eftir svo kölluðum sjávar strætó eða eins og það er kallað í Feneyjum.
Loks þegar við vorum komin á hótelið þá fengum við nú ekki að slappa af. Við þurftum að fara strax að skoða bæjinn. eða það var það sem kennurunum þótti hentugast.

No comments: