Tuesday, August 29, 2006

nytt verkefni


Jæja nú er komið að nýju verkefni sem er að búa til matreiðslubók.
þetta verkefni á að taka okkur tvær vikur og í dag eigum við bara að "brainstorma" sem þíðir að láta hugan reyka og fá eins margar hugmyndir og við getum.. það gengur ekki vel hjá mér en það verður örugglega betra með tímanum.
Við verðum að gera allt sjálf. Taka ljósmyndir og allt svoleiðis ekkert photoshop og ekkert þess háttar dótarí
það verður gaman að sjá hvernig þetta á eftir að enda en ég sýni myndir af því seinna. En myndin sem þið sjáið hér fyrir ofan er plaggat sem ég gerði fyrir tískusýningu sem haldin verður 8. september. og verður það útum allt hér í danmörk

1 comment:

Anonymous said...

Matreiðslubók - hljómar spennandi! áttu að elda réttina líka? Ef ekkert er að gerast í brainstorminu líttu þá upp úr þessu og renndu huganum yfir matarstaðina sem þú hefur unnið á. Svo gæti líka verið sniðugt að skoða á netinu eða labba út í bókabúð og kíkja aðeins í matreiðslubækur. Spurning um að mynda með hvítum bakgrunni til að auðveldara sé að nota alls kyns "effecta" eftir á ef að það má! hilsen