Tuesday, December 05, 2006

Jæja þá er ég búinn að leika mér með dauða kind


Þetta tók nú svo sannarlega á þessi gjörningur. Dagurinn byrjaði svo að ég átti að fá skólabílinn lánaðann og keyra til aalbog sem er hér rétt hjá. En vill ekki svo skemmtilega til að það er verði að nota hann á fullu þennann dag. Þá fyrst varð ég stressaður. Búinn að henda út "flyerum" og fólk bjóst við sýningu klukkan fjögur. Jæja það reddaðist svo að Mike kennarinn minn lánaði mér bílinn sinn og ég og vinur minn og samnemandi keyrðum að slátur húsinu. Ég verð að viðurkenna að ég bjóst við meiri viðbóði en raun bar vitni um. Þetta var þryfanlegt og allt í þeim toganum. Hittum þar mann og sögðum honum alla sólasöguna. Hann benti á ruslatunnu hrúgu. Ég get ekki sagt að ég hafi verið beint ánægður þegar ég sá Heilann nautahaus stangandi þar uppúr. Því ég þurfti að finna hluti þarna ofaní. jæja eftir s.c. hálftíma vorum við lagðir af stað til baka. En þá átti ég eftir að fara með hljóðkerfi, ljós, og setja vatn í baðkarið á sýningar stað. Mike talaði við mig seinna um daginn þegar klukkan var orðin tvö og honum leist ekkert á blikuna. Hann sá ekki fram á það að mér tækist að klára allt fyrir fjögur. En eins og okkur Íslendingum er einum lagið þá tókst mér þetta á mettíma og sýningin gekk frábærlega. Fólk stóð og klappaði lengi, lengi og þá var ég alveg búinn á því.

Það var þá sem heit sturta kom sér MJÖG vel.

3 comments:

Anonymous said...

Æðislegt að þetta hafi tekist, það verður forvitnilegt að sjá þennan gjörning hjá þér. Hlakka til að fá þig heim. Love you

Anonymous said...

Til lukku með hvað þetta gekk vel hjá þér, þó ég skilji þetta ekki alveg, þá veit ég að þetta hefur verið flott hjá þér, hlakka til að sjá þig 15. des.
Mamma

Anonymous said...

jæja það hafðist þá :D ég er eiginlega svolítið forvitin að sjá hvernig þetta leit út. Þú verður bara að fjöldaframleiða dvd og senda :P hehe en já til hamingju með það og góða ferð heim ef við heyrumst ekkert fyrir það!!