Tuesday, November 28, 2006

Þá er komið að því


Jæja þá er ekki mikið eftir. það er komið að síðasta verkefninu fyrir jól og á það eftir að taka mig tvær vikur. það er svo í pottinn búið að ég átti að gera það sem ég vildi en samt sem áður átti það að tengjast samvisku. ég ákvað að ég yrði að gera eitthvað gjörsamlega allt öðruvísi en allir aðrir svo að ég ákvað að gera gjörning og vinna svo úr honum video og setja á dvd. gjörningurinn hljómar svo... ég ætla að fá líffæri úr kind og hnýta þau í bönd sem fest verða við loftið. ég mun svo ganga inní herbergið og leggjast í bað. sem verður fullt af rauðu vatni. þá hnýti ég hina endana á böndunum við sjálfan mig og hreyfi mig á einhvern undarlegann hátt svo að lífflærinn byrja að heyfast. þetta á allt að tákna það að ég verð þarna inní miðri kindini eða "samviska" kindarinnar og svo verður gjörningurinn tekinn upp á meðan öllu þessu stendur. gaman er að segja frá því að ég verð líka búinn að semja alla tónlistina og hanna ljósinn fyrir þetta. og svo er líka mjög gaman að segja frá því að allir kennararnir voru mjög ánægðir að heyra þessa hugmynd og hlakkar mjög til að sjá útkomuna.

en ég skrifa meira um afraksturinn síðar.

6 comments:

Anonymous said...

jahá, veit ekki hvort að ég eigi að segja að þetta hljómi "spennandi" en mig hlakkar samt til að sjá afraksturinn ;) Ef að ég þekki þig rétt þá á þetta aftir að verað cool.

Anonymous said...

Ég elska hvað þú ert skrítinn og listrænn ástin mín. Love you!

Anonymous said...

Sælir frændi, var bara að rekast á þessa síðu hjá þér. Vonandi að það gangi allt vel hjá þér í Danaveld. Við sjáustum svo vonandi áramótin.

Anonymous said...

Haha : ) Halli, þú ert svo fuck hugmyndaríkur. Engum heilbrigðum manni myndi detta svona lagað í hug, nema þér. Þú ert sá allra sniðugasti og ég trúi og treysti á þig.

Gangi þér ótrúlega vel með þetta verkefni og mig langar til þess að segja þér að það allt sem þú ert að gera um þessar mundir eru góðir hlutir.

14 dagar! Ég hlakka til að sjá þig, þar sem að þú beilaðir á mér síðast þegar þú varst á klakanum.

Lýst vel á þig Halli minn. Mér þykir ótrúlega vænt um þig og fyrirgefðu hvað ég er búin að vera léleg í því að commenta á þessa síðu.

Anonymous said...

hehe þetta er sérstakt en þú ert heldur ekki þekktur fyrir eitthvað venjulegt =) lýst vel á þetta hjá þér og það er frábært að þú sért ánægður þarna úti =)

Anonymous said...

þú og kindur... :) flott hugmynd.... hlakka til að sjá hana... ég fer líklega ekki til eyja sykur ... en vonandi fæ ég að sjá þig eitthvað í jólafríinu .. en ef þér tekst að púsla einhverju saman milli jóla og nýárs mæti pottþétt....