
já það er ekki frá því að Ása hafi komið til mín. ég veit að ég er að skrifa þetta svolítið seint en betra er seint en aldrei. Ég var að koma frá Ítalíu og fórum við saman ég, Ari, Habba og Dóra. Dóra skildi við okkur snemma því hún fór til íslands um hádegi en um kvöldið koma ljós lífs míns jújú það var engin önnur en hún Ása Jenný Gunnarsdóttir aka. unnusta mín og ekki var hún nú ein að þessu sinni heldur með vinkonu sína. hana Andreu. það var allt svo gott þegar við komum saman þetta kvöld. en morguninn eftir þá var okkur blöskrað ei lítið það var ekki meira né minna en misskilningur á herbergis bókun.......... í stað tveggja herberja. eitt eins manns og eitt tveggja manna. þá fengum við eitt þriggja manna og ekkert hægt við því að gera því að það var allt annað bókað eða í notkun. svo að greyið Andrea þurfti að sofa já inni hjá okkur Ásu alla helgina.
það var nú ekki mikið gert annað en skoðað og verslað... og verð ég að segja að það var ekki ég sem átti stæðsta þáttinn í seinna orðinu. fóru út að borða og áttum ánægjulegar stundir saman.
en hvað haldiði hhaldiði að ég hafi ekki gleymt að taka myndir alla þessa helgi nema rétt áður en að stelpurnar fóru.... það eru aðalega myndir af Ásu og verða þær ekki byrtar vegna þess að ég held að henni þykki ekki neitt svo vænt um það.

2 comments:
Hlakka til að fá þig heim á fimmtudaginn. Fajitas handa þér að borða hjá mér á föstudaginn
Sé þig á fimmtudaginn
Þín systir
Kolla
P.s. Kalli getur ekki beðið eftir að sjá þig og leika við þig
hahhahha... fyndið ....ég get nú ekki annað sagt en greyið andrea..heheh... og þið eiginlega líka... skötuhjúin .... :))))
Post a Comment