Jæja. Þá var það helgi eina ferðina enn. Við Íslendingarnir fórum til Aarhus og var það skemmtibuna. Við lögðum af stað frá skólanum og löbbuðum þá til Ølst. En einhver í hópnum var viss um það að rútan sem keyrði til Aarhus færi kl 17:05 en allt var fyrir ekki. Hún fór kl 17:00. Og auðvitað misstum við af henni og þurftum að bíða í klukkutíma eftir næstu rútu. En þegar við vorum komin þá var það enginn annar en Birk sem beið okkar þar. Við Fórum þá á Burger King og þar það yndislegt. Aðeins að komast frá þessum heilsumat sem við erum vön hérna í skólanum.
En okkur var ekki til setunar boðið og þurftum að labba í svona tuttugu mínútur til að komast heim til Birk. Þar sátum við fram eftir og drukkum bjór. En seinna um kvöldið fórum við í svona "underground" party sem haldið var í gamalli verksmiðju sem fljótlega á að rífa.
Sá staður var mér mikið að skapi því helvíti gott jazz band var að spila og góð stemming var í loftinu.
Þar eftir fórum við á "Súkkulaði verksmiðjuna" sem er einn af stærri stöðunum þarna í Aarhus. Þar skemmti ég mér ekki eins vel því að ekki var tónlistin sniðin að mínum þörfum.
Það leið ekki að löngu að ég og Ása ákváðum að fara heim í skólann að sofa en ekki gista heima hjá Birk. Þá var okkur litið á klukkuna og það voru 10 min. í það að rútan færi. Við hlupum og hlupum og hlupum og á endanum þá tókst okkur þetta þerkvirki. og vorum komin heim heil á höldnu uppí rúm og sæl.

2 comments:
Greinilega alltaf stuð hjá ykkur. Hlakka svaka til að fá ykkur um páskana.
Kv. Kolla Syss
Þið eruð bara fyndin.............híhí
Post a Comment