Monday, October 30, 2006

STÓR FEST Í SKÓLANUM


jájá maður lifandi það var bara fullur skóli af gömlum nemendum hérna um helgina svona sirka 90 stikki plús við öll 72 þið gerið reykninginn. Við kynnumst mjög mörgum og það var algjör snild að vera hérna. en vildi bara segja ykkur frá þessu vegna ég er ekkert búinn að vera að duglegur að blogga en jæja búinn að gera þrjú blogg í kvöld reyni að halda þessum eldmóð:)

Þema vika í skólanum


já það var þema vika hjá mér í skólanum og var ég í svo kölluðum "hljóðhóp" sem fólgst í því að við völdum okkur herbergi þrír drengir saman og áttu að taka upp hljóð í herberginu. Berja ,lemja og slá. svo áttum við að vinna tónlist úr öllu saman. það gekk vel hjá okkur og svo áttum við að sýna tónlistina í herberginu svo allir gætu séð.
sumir gerðu gjörning og aðrir gerðu video það gerðum við.

Á leið heim


Nú er svo í pottinn búið að maður ætlar að kíkja heim til Vestmannaeyja. Það verður lagt af stað í reistuna þann 2. nóv og fer ég í flug 13:20 á staðar tíma. Ég er mjög spenntur að sjá hvað verður úr þessari ferð minni og gaman verður að sjá gleymd andlit hinnar fögru eyju. Dvöl mín mun svo enda þann 7.nóv þegar ég held aftur úr landi og kveð ísland á ný.

Hlakka mjög til að sjá ykkur öll en þá aðalega fjölskildu mína og unnustu.

Wednesday, October 25, 2006

Þegar Ása konan mín kom til mín


já það er ekki frá því að Ása hafi komið til mín. ég veit að ég er að skrifa þetta svolítið seint en betra er seint en aldrei. Ég var að koma frá Ítalíu og fórum við saman ég, Ari, Habba og Dóra. Dóra skildi við okkur snemma því hún fór til íslands um hádegi en um kvöldið koma ljós lífs míns jújú það var engin önnur en hún Ása Jenný Gunnarsdóttir aka. unnusta mín og ekki var hún nú ein að þessu sinni heldur með vinkonu sína. hana Andreu. það var allt svo gott þegar við komum saman þetta kvöld. en morguninn eftir þá var okkur blöskrað ei lítið það var ekki meira né minna en misskilningur á herbergis bókun.......... í stað tveggja herberja. eitt eins manns og eitt tveggja manna. þá fengum við eitt þriggja manna og ekkert hægt við því að gera því að það var allt annað bókað eða í notkun. svo að greyið Andrea þurfti að sofa já inni hjá okkur Ásu alla helgina.

það var nú ekki mikið gert annað en skoðað og verslað... og verð ég að segja að það var ekki ég sem átti stæðsta þáttinn í seinna orðinu. fóru út að borða og áttum ánægjulegar stundir saman.

en hvað haldiði hhaldiði að ég hafi ekki gleymt að taka myndir alla þessa helgi nema rétt áður en að stelpurnar fóru.... það eru aðalega myndir af Ásu og verða þær ekki byrtar vegna þess að ég held að henni þykki ekki neitt svo vænt um það.

Tuesday, October 10, 2006

Feneyjar


Ferðin var efið í magra staði. Við vöktum lengi og það var mikið gert á daginn og farið snemma á fætur sem var mjög leiðinlegt. Við skoðuðum mörg söfn og svo var bærinn sjálfur eitt stórt safn ótrúlegt að vera labba í eldgömlum bæ sem lyktar af gömlum arkitegtúr og list.
Annað sem við gerðum var að fara á Alþjóðlegt arkitegtúrasafn sem var aldið á stæðstu eyjuni og það var mjög fróðlegt. ísland átti sinn þátt í sýniguni og var ísland ekkert síðara en önnur lönd á þessari sýningu.
Ekki verður nú slept því að tala um "fylliríin Feneyjum því það var mikið um það enda í svokölluðu fríi. haha...
Við kynntumst mjög mörgum þarna úti og gaman er að segja frá því aðvið höldum að einn kennari hafi slegið sér upp með nemanda. engin nöfn verað þó gefin upp.
En þegar uppi var staðið þá var þetta snild í alla staði hefið samt viljað að konan mín hefði verið með mér í þessari rómantískustu borg sem ég hef upplifað.

Ferðin til Feneyja


Jæja við þöknum snemma þennann morgun til að koma okkur af stað. Fyrir utan skólan biðu tvær rútur sem við þurftum að ferðast í, í 20 klukkutíma. Þetta var spennandu til að byrja með og var fólk yfir höfuð í miklu stuði. Sumir ákváðu að leggja sig strax og vera þá betur sofin þegar líða færi á freðina.... ég var einn af þeim.
Ég hefði frekar átt að sleppa því. því ég svaf ekki mikið um nóttina og ég get ekki sagt að það sé neitt auðvelt að fynna sér góðan stað já eða stöðu til að sofa í í rútu.
En loks var komið á leiðarenda allir mjög þreyttir og illa sofnir. þá fengum við okur að borða og það var ekkert spes. Við biðum svo eftir svo kölluðum sjávar strætó eða eins og það er kallað í Feneyjum.
Loks þegar við vorum komin á hótelið þá fengum við nú ekki að slappa af. Við þurftum að fara strax að skoða bæjinn. eða það var það sem kennurunum þótti hentugast.