Jæja um helgin kom hún Ása mín í heimsókn og það var mjög gott að sjá hana eftir svona langan tíma. Við vorum hérna í skólanum alla helgina og höfðum það mjög gott. Fórum í Randers á laugadagskvöldið til að skemmta okkur. Við vorum bara 10 í skólanum svo að þetta var þéttur hópur.
Mánudagsmorguninn kl. 4 fórum við hjónin á fætur og ætluðum að taka lest til Køben. Það gekk allt vel þar til að viðvorum komin á lesta stöðina. Kortið virkaði ekki... svo að við þurftum að fara í hraðbanka til að taka út taxinn skutlaði okkur að næsta banka en hann var læstut svo að við þuftum að fara í annann. Þegar við vorum komin aftur að lestastöðini þá var lestin farin. OG við þurftum að bíða í hálftíma eftir næstu. Þegar við komum í hana mundum við eftir því að við gleymdum að kaupa miða... Svo okkur var hent út í Árhúsum. þar þurfti ég að hlaupa og kaupa miða þegar ég kem niður aftur er lestin að skríða í burtu svo að við þuftum að bíða í annann klukkutíma. Jæja við komumst loks í lest og á leiðar enda eða Køben. Þar fengum við okkur að borða og Ása vildi versla aðeins eins og skiljanlegt er fyrir konu... það er eitthvað sem konur vilja gera. En svo förum við að drífa okkur í lest á flugvöllinn. Í lestini áhveður Ása að kíkja í töskuna og tjekka á miðanum en sér til skelvingar sér hún að flugið er klukkutíma fyrr en hún hélt. Svo......... Það er hlaupið og hlaupið og hlaupið á flugvellinum sem var reyndar skipti litlu því að loks þegar við komum á leiðarenda var flugið lokað og hún "orðin" of sein þó svo að það væru 20 mín í flugið.
Við þurftum að kaupa nýjan miða og næsta flug var ekki fyrr en eftir 7 tíma. Svo að við Ása ákváðum að fara aftur til Køben og skoða okkur um því hún hafði aldrei komið þangað áður. Við skoðuðum margt hún kíkti í nokkrar búðir. og svo settumst við bara á kaffi hús til að spjalla og njóta þessara óvæntu samveru. við komumst á leiðar enda og erum heiláhöldnu og bíðum nú spennt í mánuð eftir öðru æfintýri.
p.s. maður spyr sig er þetta ekki eitthvað svona týbíst Ari og Berit....?
Tuesday, September 05, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

10 comments:
Óskaplega er ég glöð að sjá síðu!! En ó mægod vesenið á ykkur hjúunum!!
Vonandi hefuru það gott þarna úti, sjáumst um jólin, Nía
Skemmtileg frásögn.Þið eruð náttúrulega bara fyndin.
Vonandi gengur betur í næstu ferð :)
ó mæ god þið eruð heppin að gleyma ekki sjálfum ykkur, greinilegt að ég hef hugsað of mikið og of lengi fyrir þig. En svona er að hafa ekki mömmu til að skipuleggja og sjá um hlutina fyrir þig, elsku Haraldur minn, þetta verður greinilega meiri skóli fyrir þig en ég hélt......ástar og saknaðarkveðjur þín Mamma
Hæ ástin mín. Við erum náttla bara best.Þetta er orðið fyndið núna. Ástar og saknaðar kveðjur
your love Ása:*
Hvernig væri nú að fara að setja fleiri myndir inn.
Mamma
Hvað væri lífið án svona ævintýra? svona krydd er nauðsynlegt öðru hvoru eini gallinn er að mamma þín hefur nú meiri áhyggjur en fyrr og var víst ekki á það bætandi, Kannski kemur út bók um ævintýri Haraldar í Danaveldi, hver veit?
hahahahaha!! jú!! þetta eru týpísk mamma og pabbi!!! hahaha... æji góð ferð samt ;)
Elsku Haraldur minn!
Til hamingju með 19. afmælisdaginn. Sakna þín voðalega mikið. þín mamma.
Til hamingju með afmælið Haraldur Ari. Gaman að lesa af þér. Besta kveðja. Haraldur frændi.
hehehe.... snilldar saga.. :) ja hérna hér....
Post a Comment