Sunday, March 11, 2007

Netið að fara með alla


Svo skemmtilega vill að netið hérna í skólanum er búið að vera að hrella okkur öll. Og vil ég fyrir mína hönd biðja alla velvirðingar á þessu. Það er ný búið að setja net í allann skólann og það er ekki að virka sem skildi. Svo er það það að tölvan mín er ekki búin að virka heldur svo að ég ef verið með hendur bundnar fyrir aftan bak í tvær vikur eða þrjár. En ég vonast til að fá svar við þessu sem fyrst.
Það má segja að þessi helgi sem er að líða núna sé búin að vera frábær. Habba og Dóra komu og heimsóktu okkur og með þeim fylgdi Ingibjörg. Má segja að við gátum allsvakalega náð að taka upp þráðinn frá því í fyrra.
Annað. Núna í kvöld er ég að fara að byrja á möppuni minn fyrir kölding skólann. Hún á að vera þrjár síður í A3 formatti. Er ég núna búinn að vera að hugsa hvað ég á að setja í hana og er kominn með svona nokkuð solid hugmynd. En möppuni á að vera búið að skila á miðvikudaginn.

Wednesday, March 07, 2007

Mikill gestagangur


Það er nú bara einu sinni svo að það verður mikill gestagangur hjá okkur hérna um helgina. Tveir af stofnendum Ingólfs koma í heimsókn já ég er að tala um ekki aðrar en Höbbu og Dóru. já þær koma til okkar núna á morgun og er mikil spenna í fólki og verður gaman að sjá þær aftur af þeim ástæðum að þær voru jú nú einar af mínum bestu vinum hérna í fyrra.
En annað að frétta er það að á laugardaginn verður svo kallað teiknimaraþon. Og vill svo skemmtilega til að ég verð módel þar. Já ég veit hvað einhver er að hugsa núna. Það er "ohh Halli alltaf kemur þú þér í eitthvað svona" en svo er það ekki. En það er það samt. Ég á víst að vera hangandi í loftinu eins og ég veit ekki hvað og fæ borgað fyrir það.... Allir glaðir.
Svo er það svo að ég verð að viðurkenna það að ég er nú farinn að sakna eyjunar fögru mjög og er farið að langa pínu að kíkja aðeins heim. En það fer nú að lýða að því. Já ferðini er heldið heim um páskana.

Svona að lokum vildi ég setja eina mynd sem liggur hér rétt ofar. Þetta er mynd af mér þegar ég er/var að skrifa þetta. njótiði þess hvað ég er fallegur.

Sunday, March 04, 2007

Núna er helgi


Jæja. Þá var það helgi eina ferðina enn. Við Íslendingarnir fórum til Aarhus og var það skemmtibuna. Við lögðum af stað frá skólanum og löbbuðum þá til Ølst. En einhver í hópnum var viss um það að rútan sem keyrði til Aarhus færi kl 17:05 en allt var fyrir ekki. Hún fór kl 17:00. Og auðvitað misstum við af henni og þurftum að bíða í klukkutíma eftir næstu rútu. En þegar við vorum komin þá var það enginn annar en Birk sem beið okkar þar. Við Fórum þá á Burger King og þar það yndislegt. Aðeins að komast frá þessum heilsumat sem við erum vön hérna í skólanum.
En okkur var ekki til setunar boðið og þurftum að labba í svona tuttugu mínútur til að komast heim til Birk. Þar sátum við fram eftir og drukkum bjór. En seinna um kvöldið fórum við í svona "underground" party sem haldið var í gamalli verksmiðju sem fljótlega á að rífa.
Sá staður var mér mikið að skapi því helvíti gott jazz band var að spila og góð stemming var í loftinu.
Þar eftir fórum við á "Súkkulaði verksmiðjuna" sem er einn af stærri stöðunum þarna í Aarhus. Þar skemmti ég mér ekki eins vel því að ekki var tónlistin sniðin að mínum þörfum.
Það leið ekki að löngu að ég og Ása ákváðum að fara heim í skólann að sofa en ekki gista heima hjá Birk. Þá var okkur litið á klukkuna og það voru 10 min. í það að rútan færi. Við hlupum og hlupum og hlupum og á endanum þá tókst okkur þetta þerkvirki. og vorum komin heim heil á höldnu uppí rúm og sæl.