Sunday, September 24, 2006

Afsökunar beiðni

Þið verðið afsaka mig ég get ekki sett myndir inná því það er eitthvað að síðuni en ég lofa að innan bráðar verð ég búinn að setja helling inná og gera eitthvað flott. ég er einmitt með mikið af drasli sem ég er búinn að vera að gera svo að það er slatti sem ég á eftir að setja inná. og hver veit nema að ég setji myndir að skegginu góða sem kallinn er kominn með. hahahaha

Það verður bara betra og betra

Jæja sorry hvað ég er búinn að vera óduglegur við að skrifa. þið trúið því örugglega ekki hvað það er alltaf mikið að gera hjá mér og þessi þemavika sem var að taka enda á föstudaginn var geðveik. Ég var í "adobe" sem er tölvuhópurinn lærið margt nýtt reyndar bara nýjar tæknir og svoleiðis en ég hef ákveðið að fara að leika mér meira að spreyji það er snild sem hægt er að gera með svona spreyji. en jæja það er voða lítið sem ég get sagt núna. jú kanski. í gær fórum við habba og dóra út að borða í randers á mexikanskan stað sem var algjör snild og svo fórum við á breskan pöbb og þar var band að spila (blús) mér leiddist það nú ekki en þá fengum við hrigingu úr skólanum og það vara alveg heljarinnar party þar og svo við ákváðum að fara aftur í skólan og það var dansað fram á nótt.
ég reydar er farinn að saknasvolítið þess að geta farið í toppinn og fá mér einn djúsí að hætti kalla. það væri all svakalegt að fá einn borgara hjá honum núna. HAHA en jæja haldið áfram að skrifa til bara og endilega sendið mér einhverjar fréttir eða eitthvað. það væri gaman fyrir mig sem lifi í eymd og vanlíðan hahah neinei ég er að lifa draumi hérna skrifa meira seinna.

Wednesday, September 13, 2006

Loksins


Jæja þa eru komnar nyjar myndir inn. Svakalega faar en þetta eru myndir. Gott að sja hvað folk er að taka mikinn þatt i þessari heima siðu hja mer og þakka eg fyrir það. Gaman að heyra að folki þyki vænt um mig. Það er eins og alltaf allt geðveikt gott herna og Gangurinn minn hjellt party fyrir mig og það var kaka og finiri. Nyr strakur var ad koma i skolann hann er noskur og bara mjög finn t.d. gaf hann mer rauðvin i afmælisgjöf.

Tuesday, September 12, 2006

Hr. Yfirvaraskegg

Nu a eg afmæli og er buinn ad fa fult af pokkum fra krokkum i skolanum. Hef reyndar voda litid ad segja tad er bara alltaf brjalad ad gera.

en nuna er keppni i gangi milli okkar drengjana i skolanum. tetta er keppni um flottasta yfirvarakeggid og hun mun taka einn og halfan manud. tad fa allir karlmenn skolans ad taka tatt. og svo verdur mikil veisla og domnefnd.

jæja eg var ad klara verkefni um madreydslubok og koma kannski nyjar myndir i kvold eda a morgun ef timi gefst.

en jæja eg er farinn ad safna skeggi skrifa meira tegar eg hef meiru tima.


p.s. fyndid eg flyt til danmerkur og ta er staffaparty i toppinum... haha

Tuesday, September 05, 2006

Ása Jenny Unnusta i heimsókn

Jæja um helgin kom hún Ása mín í heimsókn og það var mjög gott að sjá hana eftir svona langan tíma. Við vorum hérna í skólanum alla helgina og höfðum það mjög gott. Fórum í Randers á laugadagskvöldið til að skemmta okkur. Við vorum bara 10 í skólanum svo að þetta var þéttur hópur.
Mánudagsmorguninn kl. 4 fórum við hjónin á fætur og ætluðum að taka lest til Køben. Það gekk allt vel þar til að viðvorum komin á lesta stöðina. Kortið virkaði ekki... svo að við þurftum að fara í hraðbanka til að taka út taxinn skutlaði okkur að næsta banka en hann var læstut svo að við þuftum að fara í annann. Þegar við vorum komin aftur að lestastöðini þá var lestin farin. OG við þurftum að bíða í hálftíma eftir næstu. Þegar við komum í hana mundum við eftir því að við gleymdum að kaupa miða... Svo okkur var hent út í Árhúsum. þar þurfti ég að hlaupa og kaupa miða þegar ég kem niður aftur er lestin að skríða í burtu svo að við þuftum að bíða í annann klukkutíma. Jæja við komumst loks í lest og á leiðar enda eða Køben. Þar fengum við okkur að borða og Ása vildi versla aðeins eins og skiljanlegt er fyrir konu... það er eitthvað sem konur vilja gera. En svo förum við að drífa okkur í lest á flugvöllinn. Í lestini áhveður Ása að kíkja í töskuna og tjekka á miðanum en sér til skelvingar sér hún að flugið er klukkutíma fyrr en hún hélt. Svo......... Það er hlaupið og hlaupið og hlaupið á flugvellinum sem var reyndar skipti litlu því að loks þegar við komum á leiðarenda var flugið lokað og hún "orðin" of sein þó svo að það væru 20 mín í flugið.
Við þurftum að kaupa nýjan miða og næsta flug var ekki fyrr en eftir 7 tíma. Svo að við Ása ákváðum að fara aftur til Køben og skoða okkur um því hún hafði aldrei komið þangað áður. Við skoðuðum margt hún kíkti í nokkrar búðir. og svo settumst við bara á kaffi hús til að spjalla og njóta þessara óvæntu samveru. við komumst á leiðar enda og erum heiláhöldnu og bíðum nú spennt í mánuð eftir öðru æfintýri.


p.s. maður spyr sig er þetta ekki eitthvað svona týbíst Ari og Berit....?